Daggæsla barna í heimahúsum í A-Hún
1.KAFLI
Leyfisveitingar
1.gr.
Félagsþjónusta A- Hún veitir leyfi til gæslu barna í heimahúsum og skulu leyfishafar einir hafa heimild til að taka greiðslu fyrir slíka gæslu. Ólöf Birna Björnsdóttir verkefnastjóri hefur umsjón með leyfisveitingum
1. Umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
2. Umsækjandi hafi sótt námskeið um uppeldis- og fræðslumál.
Sé um að ræða umsækjanda með menntun á uppeldissviði getur fjölskylduráð veitt undanþágu frá skylduþátttöku í námskeiði að hluta eða öllu leyti. Í slíkum tilfellum skal viðkomandi sækja stutt námskeið sem daggæslufulltrúi undirbýr í samráði við samtök dagforeldra.
3. Fyrir liggi sérstakt heilbrigðisvottorð sem staðfestir að ekki hafi
fundist merki um sjúkdóma, þar með talin áfengis- eða fíkniefnavandamál eða annað sem hindrað getur að umsækjandi sinni daggæslu. Heimilt er að óska eftir umsögn læknis ef ástæða þykir til. Heilbrigðisvottorð fyrir aðra heimilismenn skal jafnframt fylgja umsókn.
4. Fyrir liggi umsögn síðasta vinnuveitanda eða tveggja ábyrgra
aðila. Umsögn skal bera með sér að umsækjandi teljist hæfur til að taka að sér daggæslu barna.
5. Fyrir liggi sakavottorð sem Félagsþjónustan aflar hjá
Ríkissaksóknara. Sé sakavottorðið ekki hreint metur fjölskylduráð hvort athæfi sem fram kemur á sakavottorði hafi áhrif á hæfni umsækjanda til að hafa barn í umsjá sinni. Sakavottorðs fyrir aðra heimilismenn verður aflað með sama hætti.
6. Fyrir liggi samþykkt eldvarnareftirlits á heimili umsækjanda.
Skylt er að á heimilinu sé slökkvitæki og reykskynjari og eldvarnarteppi í eldhúsi. Kveðið er nánar á um skyldur leyfishafa varðandi öryggisatriði í 21. gr.
7. Fyrir liggi samþykkt heilbrigðiseftirlits á heimili umsækjanda.
8. Skriflegt samþykki leigusala liggi fyrir ef um leiguhúsnæði er
Að ræða. Í fjöleignahúsum þarf samþykki meirihluta íbúa að liggja fyrir.
9. Lágmarksleikrými fyrir hvert barn sé a.m.k. 3,5 fm innanhúss.
Aðstaða til útivistar skal auk þess vera fullnægjandi og hættulaus. Hvíldaraðstaða skal vera til staðar innanhúss fyrir öll börnin samtímis.
10. Fyrir liggi umsögn ráðgjafardeildar um að umsækjandi hafi
hvorki orðið uppvís að broti né sé með rökstuddum hætti grunaður um brot á barnaverndarlögum.
Uppfylli umsækjandi ekki skilyrðin skal synja um veitingu leyfis. Skal synjunin vera skrifleg og rökstudd og umsækjanda jafnframt bent á áfrýjunarrétt sinn skv. Lögum.
3. gr.
Við leyfisveitingu skal dagforeldri framvísa slysatryggingu barna eða skírteini samtaka dagforeldra.
4. gr.
Við endurnýjun leyfis eftir eitt ár getur fjölskylduráð óskað eftir staðfestingu á slysatryggingu barna, heilbrigðisvottorði og sakavottorði og öðrum þeim gögnum sem nauðsynleg þykja.
5. gr.
Fjölskylduráð skal synja um endurnýjun leyfis bresti til þess forsendur s.s. ef dagforeldri uppfyllir ekki lengur skilyrði reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum eða vegna brota á ákvæðum laga og reglna um starfsemi dagforeldra.
ll. KAFLI
Hlutverk daggæslufulltrúa
6.gr.
Hjá Félagsþjónustunni veitir verkefnastjóri ráðgjöf og hefur eftirlit með daggæslu í heimahúsum og annast undirbúning leyfisveitinga.
Daggæslufulltrúi afgreiðir leyfi og synjar ef svo ber undir í umboði félagsþjónustu A-Hún.
7.gr.
Megin verkefni daggæslufulltrúa eru:
1. Að hafa umsjón með starfsemi dagforeldra og annast stuðning,
fræðslu og ráðgjöf eftir því sem kostur er.
2. Að kynna formlega starfsemi og starfshætti daggæslunnar þegar
nýtt daggæsluleyfi er afhent, þ.m.t. reglugerð ráðuneytis og reglur fjölskylduráðs. Jafnframt að veita ráðgjöf og leiðbeiningar varðandi fyrirkomulag daggæslunnar.
3. Að sinna reglubundnu eftirliti með dagforeldrum eins og kveðið
er á um í lll. Kafla reglna þessara.
4. Að fara reglulega í heimsóknir til dagforeldra í þeim tilgangi að
veita ráðgjöf og stuðning.
5. Að skipuleggja reglulega fræðslufundi með dagforeldrum í
þeim tilgangi að miðla fræðslu og upplýsingum.
6. Að halda fundi með dagforeldri og forráðamönnum barns þegar
þess er óskað eða talin þörf á.
7. Að sjá til þess ef barn er fatlað að ráðgjöf verði veitt eins og
kostur er. Um slíkt skal þó ætíð hafa samráð við forráðamenn barns.
lll. KAFLI
Eftirlit
8. gr.
Eftirlit daggæslufulltrúa með starfsemi dagforeldra skal vera þríþætt
- Innra eftirlit sem felst í mánaðarlegum skilum dagforeldris á yfirliti
yfir skráð börn í gæslu í hverjum mánuði, staðfestu af forráðamanni hvers barns.
- A.m.k. þrjár eftirlitsheimsóknir á ári þar sem farið er yfir þar til
gerðan gátlista um öryggisatriði, aðbúnað og fjölda barna.
Gátlistinn er staðfestur af daggæslufulltrúa og dagforeldri að lokinni hverri heimsókn.
- Daggæslufulltrúi hefur heimild til að afla upplýsinga frá
forráðamönnum barns um viðhorf þeirra til dagforeldris.
9.gr.
Ef í ljós kemur í eftirlitsheimsókn að aðbúnaði eða öryggisatriðum er ábótavant skal daggæslufulltrúi óska skriflega eftir úrbótum. Verði dagforeldri ekki við fyrirmælum um úrbætur innan fjögurra vikna skal forráðamönnum barna tilkynnt um það og farið með málið skv. 11.gr.
10.gr.
Ef í ljós kemur í eftirliti að börn eru of mörg í umsjá dagforeldris skal beina skriflegum fyrirmælum til dagforeldris að virða reglur um fjölda barna. Ef dagforeldri verður ekki við fyrirmælum innan fjögurra vikna skal fara með málið skv. 11.gr.
11.gr.
Ef dagforeldri hefur ekki farið að fyrirmælum sem gefin hafa verið skv. 9. og 10. gr. skal dagforeldri tilkynnt skriflega að mál hafi verið tekið til meðferðar, tillaga muni verða gerð um leyfissviptingu og henni vísað til afgreiðslu fjölskylduráðs. Forráðamönnum skal sömuleiðis kynnt staða málsins.
Komi til leyfissviptingar skal dagforeldri þegar í stað skila inn leyfi sínu.
lV. KAFLI
Skyldur forráðamanna
12.gr.
Mikilvægt er að forráðamenn kynni sér vel lög og reglur sem dagforeldrar starfa eftir. Einnig að þeir athugi leyfilegan fjölda barna og aldursskiptingu þeirra áður en dvöl er ákveðin. Ákvörðun um gæslu barns er ætið á ábyrgð forráðamanns.
13. gr.
Aðlögun að gæslu hjá dagforeldri skal miða við þarfir barnsins og skal forráðamaður dvelja hjá barni sínu í upphafi, eftir nánara samkomulagi við dagforeldri.
14. gr.
Nauðsynlegt er að forráðamenn ræði reglulega við dagforeldri um líðan barna, þarfir þeirra og þroska.
15. gr.
Forráðamanni er óheimilt að koma með barn í gæslu ef það er með hita eða greinileg vanlíðunareinkenni vegna sjúkleika. Barn skal vera einn dag hitalaust heima eftir veikindi. Forráðamaður skal tilkynna dagforeldri ef barn er haldið einhverjum sjúkdómi.
16. gr.
Ef breytingar verða á högum barns skal forráðamaður ræða það við dagforeldri. Einnig skal dagforeldri látið vita hver sækir barnið í daggæslu ef breytingar verða þar á.
17. gr.
Forráðamanni ber að fara eftir umsömdum gæslutíma og skal koma með barn og sækja það innan þess tíma sem samið er um.
18. gr.
Forráðamanni er skylt að tilkynna til daggæsludeildar ef hann telur daggæslunni ábótavant. Einnig er æskilegt að forráðamaður upplýsi daggæsludeild um hvernig gæslan henti barninu.
19. gr.
Forráðamaður getur ávallt leitað til daggæslufulltrúa í fullum trúnaði með öll umkvörtunarefni sem varða daggæsluna.
V.KAFLI
Skyldur dagforeldra
20. gr.
Dagforeldri ber fulla ábyrgð á barni þann tíma sem það dvelst hjá því og skal það hlúa að andlegri og líkamlegri velferð barnsins í sem víðtækustum skilningi. Á þetta við um fæðuval, leiki, leikföng, hreyfingu, útiveru, tilfinningalíf og félagslega líðan barns. Dagforeldri skal sjá til þess að forráðamenn hafi vitneskju um dagskipulag, þ.m.t. matseðil. Bannað er að beita barn andlegri eða líkamlegri hirtingu.
21. gr.
Dagforeldri er skylt að sækja námskeið í slysavörnum barna og eldvarnarnámskeið á a.m.k. þriggja ára fresti. Dagforeldri er skylt að stuðla að öryggi barna í hvívetna og skal sérstaklega huga að því að hafa ákveðin öryggisatriði í lagi, þ.m.t. slökkvitæki, reykskynjara, eldvarnarteppi, sjúkrakassa, barnalæsingar á skápum með hættulegum efnum, beisli í barnavögnum og öryggishlið fyrir stigum.
22.gr.
Dagforeldri skal hafa greinargóðar upplýsingar um þau börn sem dvelja hjá því. Einnig skal dagforeldri ákveða gæslutíma og aðlögunartíma í samráði við forráðamenn barnsins. Aðlögunartíma skal miða við þarfir barnsins. Dagforeldri skal sýna forráðamönnum heimili, aðstæður inni og úti og skýra frá því hvernig það hagar starfi sínu. Dagforeldri skal gera forráðamanni grein fyrir aðstæðum sem geta haft áhrif á líðan barns, t.d. ef gæludýr er á heimilinu.
23. gr.
Dagforeldri ber að tilkynna forráðamönnum ef eigið barn yngra en 6 ára sem ekki telst til fjölda barna skv. 12. gr. reglugerðar um daggæslu barna í heimhúsum, er tilfallandi heima t.d. vegna starfsdags í leikskóla eða veikinda.
24. gr.
Dagforeldri ber að fara með allar upplýsingar sem það fær um einkahagi barns og forráðamanna þess sem trúnaðarmál, svo fremi sem upplýsingarnar varða ekki tilkynningarskyldu skv. barnaverndarlögum.
25. gr.
Verði dagforeldri þess áskynja að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður eða aðbúnaði þess sé áfátt er skylt að gera barnaverndarnefnd viðvart án ástæðulauss dráttar. Æskilegt er að dagforeldri hafi samráð við daggæslufulltrúa um slík mál. Að öðru leyti fer um slíkar tilkynningar skv. barnaverndarlögum.
26. gr.
Dagforeldri skal skila til daggæslufulltrúa mánaðarlegu yfirliti á þar til gerðu eyðublaði yfir þau börn sem voru í gæslu í mánuðinum, ásamt staðfestingu forráðamanna þeirra. Öll börn skulu skráð á mánaðaryfirlitið, áháð því úr hvaða sveitarfélagi þau koma eða hvort um niðurgreiðslu er að ræða eða ekki.
27. gr.
Dagforeldri ber að tilkynna foreldrum um frí og breytingar á vinnutíma með a.m.k. þriggja mánaða fyrirvara. Taki dagforeldri þátt í starfsdegi dagforeldra skal gera forráðamönnum grein fyrir því með eins mánaðar fyrirvara.
28. gr.
Dagforeldri skal tilkynna daggæslufulltrúa fyrirhugaða töku fæðingarorlofs með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara. Jafnframt skal dagforeldri þá skýra frá ráðstöfunum sem fyrirhugaðar eru varðandi börn sem eru í gæslu hjá því. Dagforeldri er óheimilt að hefja störf að nýju fyrr en að afloknu fullu fæðingarorlofi.
29. gr.
Dagforeldri ber að skila inn leyfi sínu við starfslok. Vilji dagforeldri hefja störf að nýju, skulu allar aðstæður kannaðar líkt og um byrjunarleyfi sé að ræða. Fjölskylduráð getur skyldað umsækjanda til að sækja námskeið að nýju, að hluta eða öllu leyti. Við ákvörðun skal horft til þess hversu langt er um liðið síðan umsækjandi starfaði sem dagforeldri og við hvað hann hefur starfað síðan.
VI. KAFLI
Ýmis ákvæði
30. gr.
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur gæslusamnings milli forráðamanns og dagforeldris er einn mánuður og skal uppsögn miðast við 1. og 15. hvers mánaðar.
31. gr.
Telji samtök dagforeldra að aðstæður barns hjá dagforeldri brjóti í bága við barnaverndarlög, ber þeim að tilkynna slíkt til barnaverndarnefndar án tafar.
32. gr.
Komi upp ágreiningur á milli forráðamanns barns og dagforeldris getur hvor aðili um sig leitað til daggæslufulltrúa og/eða stjórnar samtaka dagforeldra eftir því sem við á.
33. gr.
Félagsþjónusta A-Hún fer með úrskurðarvald um ágreining sem upp kann að koma vegna ákvæða þessara reglna. Ákvörðunum félagsþjónustu A-Hún má skjóta til félagsmálaráðuneytisins.
34. gr.
Reglur þessar verði endurskoðaðar ári eftir gildistöku.