Félags-og skólaþjónusta A-Hún sinnir eftirfarandi málaflokkum:
Einnig starfar stofnunin samkvæmt barnaverndarlögum,
- Barnaverndarmál
- Fjárhagsaðstoð
- Málefni aldraða
- Heimilisaðstoð
- Eftirlit með daggæslu í heimahúsum
- Málefni fatlaðra
- Félagsleg ráðgjöf
- Heimaþjónusta
- Áfengis- og vímuefnavandamál
- Fósturheimili, bæði tímabundið og varnalegt í samráði við Barnaverndarstofu.
Málefni fatlaðra
Í Austur – Húnavatnssýslu eru málefni fatlaðra á ábyrgð félagsþjónustu og ber félagsmálastjóri frárhagslega og faglega ábyrgð á starfsemini. Mikil gróska hefur verið í málefnum fatlaðra og mikið vatn runnið til sjávar síðustu ár. Komið hefur verið á skilvirku samvinnukerfi á milli þjónustukerfa sem þjónar börnum á leik- og grunnskólaaldri. Fötluðum börnum er fylgt eftir með góðum upplýsingum á milli skólastiga. Fagfólk vinnur í teymi í góðu samstarfi við foreldra og aðra er tengjast barninu, en teyminu er ætlað að tryggja yfirsýn yfir þjónustuúrræði, gæta samræmingar og markvissra vinnubragða. Góð samvinna er á milli stofnana og sameinast fólk um að gera þjónustuþegum sem auðveldast fyrir.
Leikfangasafn S:455-4124
Hrafnhildur Marteinsdóttir, BA í sálfræði ráðgjafi í málefnum fatlaðra. Umdæmi safnsins spannar austur og vestur- Húnavatnssýslur. Aðsetur leikfangasafnins er í Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi. Starf hennar miðast við að stuðla að markvissri ráðgjöf við fötluð börn, foreldra, skóla og samskipti við þá aðila sem koma að málefnum fatlaðra.
Sambýli S: 452-4960 / 8548860
Á Blönduósi hefur verið starfrækt Sambýli frá haustmánuðum 1994 og þar búa 5 einstaklingar. Jóhanna Kristín Atladóttir er forstöðumaður sambýlisins og eru þar 7 stöðugildi. Starfsemi sambýlisins miðar að því að hlúa að íbúum þess og tryggja að þeir búi við sem bestar aðstæður. Rekstur Sambýlis heyrir nú beint undir félagsmálastjóra, en var áður undir stjórn SSNV.
Iðja / hæfing S:452 4275
Á Blönduósi er starfrækt iðja / hæfing þar sem fötluðum fullorðnum,m.a. íbúum sambýlisins, gefst kostur á að stunda vinnu sem tekur mið af getu hvers og eins. Í iðjunni starfa fimm einstaklingar sem búa á sambýlinu og eru tveir starfsmenn í fullu starf þeim til stuðnings. Starfsemi Iðju heyrir undir Sambýlið frá haustmánuðum 2007.
- Byggðasamlag um málefni fatlaðra á Norðurlandi Vestra, SSNV, hefur starfað eftir þjónustusamningi við félagsmálaráðuneytið frá 1. apríl 1999
- Fyrri þjónustusamningur gilti til 31.des.2001 og var endurnýjaður 3. maí 2002 og gildir til ársloka 2006,
- Samningur fyrir árið 2002