Félagsþjónusta A-Hún

 

Byggðarsamlag um félagsþjónustu A-Hún var stofnað þann 17. febrúar 1998. Að byggðarsamlaginu stóðu sjö hreppar í Austur Húnavatnssýslu: Áshreppur, Blönduósbær,  Engihlíðarhreppur, Höfðahreppur, Skagahreppur, Svínavatnshreppur og Torfalækjarhreppur. Með stofnun Félagsþjónustunnar var verið að koma á móts við kröfur um viðunandi þjónustu til handa íbúum þessara sveitarfélaga.

 

Auður Herdís Sigurðardóttir  var ráðin  félagsmálastjóri frá 15. Maí 2006.  Ólöf Birna Björnsdóttir hefur starfað sem verkefnastjóri í 50% starfi frá 2001.

 

Á árinu 2002 urðu verulegar breytingar á umfangi og starfsemi félagsþjónustunnar. Nýjar reglur tóku gildi í nokkrum málaflokkum, má þar nefna reglur um fjárhagsaðstoð, heimilishjálp og daggæslu í heimahúsum.

Fjórar breytingar standa upp úr.

-          Samningurinn um byggðasamlagið var endurskoðaður og einfaldaður.

-          Sveitarstjórnir á norðurlandi vestra gerðu samning við ríkið, til fimm ára, um að sinna málefnum fatlaðra og var Félagsþjónustu A-Hún falið að annast þjónustu við fatlaða í Austur Húnavatnssýslu.

-          Stjórn félagsþjónustunnar samþykkti að taka upp 50% stöðugildi verkefnastjóra vegna aukinna verkefna félagsþjónustunnar.

-          Ný Barnaverndarlög tóku gildi 1. júní 2002.

 

Eftir þessar breytingar sinnir Félagsþjónusta A-Hún eftirfarandi málaflokkum:

Barnavernd, félagsþjónusta sveitarfélaga, félagsleg heimaþjónusta, málefni aldraðra, málefni fatlaðra, vímuefnavarnir, ráðgjöf og stuðning.

 

Mestu breytingarnar á starfsemi Félagsþjónustunnar komu fram í málefnum fatlaðra. Við yfirtöku þessa málaflokks breyttist skipurit þannig að Sambýlið að Skúlabraut 22 og rekstur þess heyrir nú beint undir félagsmálastjóra, en lutu áður stjórn SSNV. Auk þess fellur rekstur iðju og leikfangasafns nú beint undir rekstur Félagsþjónustu A-Hún.  Þess er vænst að við þessar breytingar náist fram sá möguleiki að fá fram heildstæða þjónustu til handa þeim sem á henni þurfa að halda. 12  stöðugildi.  

 

Barnavernd

Ný barnaverndarlög tóku gildi á árið 2002. Þau fela í sér lágmarksfjölda íbúa bakvið hverja barnaverndarnefnd. Sökum þessa ákvæðis hófust þreifingar seinnihluta árs um mögulega aðild Sveinstaða- og Bólstaðarhlíðarhrepps að barnaverndarnefnd A-Hún.

 

Málefni fatlaðra

Sambýli

Á Blönduósi hefur verið starfrækt Sambýli frá haustmánuðum 1994 og þar búa 5 einstaklingar. Sjö starfsmenn sem starfa á sambýlinu, forstöðumaður og 6 starfsmenn á vöktum. Starfsemi sambýlisins miðar að því að hlúa að íbúum þess og tryggja að þeir búi við sem bestar aðstæður.

 

Iðja / hæfing

Á Blönduósi er starfrækt iðja / hæfing þar sem íbúum sambýlisins, gefst kostur á að stunda vinnu sem tekur mið af getu hvers og eins.  Í iðjunni starfa fimm einstaklingar og eru tveir starfsmenn þeim til stuðnings. Forstöðumaður sambýlisins veitir Iðjunni einnig forstöðu.

 

Ráðgjöf

Ráðgjöf/Leikfangasafn, Ráðgjafi sinnir fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra í austur og vestur Húnavatnssýslum. Einnig sinnir ráðgjafi ráðgjöf til fullorðinna fatlaðra í A-Hún. Miðast starf ráðgjafa við að stuðla að markvissri þjálfun fatlaðra einstaklinga, stuðningi við aðstandendur og samskipti við þá aðila sem koma að málefnum fatlaðra.