Samningur um sálfræðiþjónustu í Austur Húnavatnssýslu

Félags- og skólaþjónusta Austur Húnavatnssýslu og Sensus slf. undirrituðu í gær 2 ára samning. Samningurinn lýtur að sálfræðiþjónustu í leik- og grunnskólum í Austur Húnavatnssýslu ásamt auknu samstarfi við barnavernd á svæðinu. Ester Ingvarsdóttir hefur starfað fyrir Félags- og skólaþjónustu A-Hún. síðastliðinn sex ár og hefur haft fasta viðveru í hverjum mánuði. Markmiðið með nýjum samningi er að efla sálfræðiþjónustu á svæðinu. Ester er nú með viðveru í allt að viku einu sinni í mánuði.
Hér sjást Þórdís Hauksdóttir fræðslustjóri, Ester Ingvarsdóttir sálfræðingur og Sara Lind Kristjánsdóttir félagsmálastjóri við undirritun samnings.