Aukinn réttur foreldra til sorgarleyfis samþykktur á Alþingi

Í dag samþykkti Alþingi frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingar á lögum um sorgarleyfi. Lögin fela í sér aukinn rétt foreldra til sorgarleyfis og styrkja stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum. Með þeim er fólki veitt svigrúm til að syrgja og tíma til að vera til staðar fyrir börnin sín á erfiðustu stundum lífsins.

Sorgarleyfi hefur verið lagalegur réttur foreldra til að fá leyfi frá störfum í kjölfar barnsmissis í sex mánuði og greiðslur til að koma til móts við tekjutap á meðan. Með nýju lögunum nær sorgarleyfi einnig til foreldra sem verða fyrir því áfalli að hjúskapar- eða sambúðarmaki andast. Foreldrar sem ekki eru í vinnu eða í minna en 25% starfi geta átt rétt á sorgarstyrk.  Þá var lengt það tímabil sem foreldri á rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk eftir fósturlát og andvanafæðingu. 

Nánar má lesa frétt um málið á vef félags- og húsnæðismálaráðuneytisins