- Félags- og skólaþjónusta A-Hún
- Helstu hlutverk
- Hafa samband
Til hamingju Húnaskóli og Húnabyggð!
Í gær fengu Húnaskóli og Húnabyggð 2.500.000 kr. úthlutun úr Sprotasjóði fyrir skólaárið 2025-2026 fyrir verkefnið Læsi fyrir lífið. Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu fjölda styrkja við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla úthlutaði núna 80,8 m.kr. til 30 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2025–2026. Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Áherslusvið sjóðsins árið 2025 voru:
Samtals barst sjóðnum 61 umsókn að undangenginni auglýsingu. Samanlagðar fjárbeiðnir námu alls 204,4 m.kr.