- Félags- og skólaþjónusta A-Hún
- Helstu hlutverk
- Hafa samband
Nýlega voru tölfræðigögn fyrir árið 2024 birt í mælaborði um farsæld barna. Markmið mælaborðsins er að veita yfirsýn um stöðu farsældar barna á Íslandi á hverjum tíma. Gögnin í mælaborðinu byggja að stórum hluta á mælingum sem koma úr Íslensku Æskulýðsrannsókninni sem fer fram í 4.-10. bekk í grunnskólum landsins á vorin. Ný uppfærsla mælaborðsins gerir það notendavænna og auðveldara í notkun.