Fréttir

Nýr starfsmaður

Valgerður Hilmarsdóttir er nýr starfsmaður velferðarmála á skrifstofu Félags- og skólaþjónustu A-Hún og hefur þegar hafið störf. Við bjóðum Valgerði velkomna til starfa og hlökkum til samstarfsins.

Skrifstofan er lokuð á morgun

Skrifstofa Félags- og skólaþjónustu A-Hún er lokuð á morgun vegna veðurs. Í neyðartilfellum hringið í 112.

Gleðileg jól

Starfsfólk Félags- og skólaþjónustu A-Hún óskar ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Lærdómssamfélag í Austur Húnavatnssýslu

Starfsmenn leik- og grunnskóla í Austur Húnavatnssýslu taka nú þátt í þróunarverkefninu Lærdómssamfélagið í A-Hún. sem Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands leiðir. Verkefnið er styrkt af Sprotasjóði og er markmiðið að efla faglegt samstarf, starfsþróun og gagnvirkt nám og skapa menningu sem hvetur og viðheldur stöðugu námi meðal starfsfólks leik- og grunnskóla til að efla nám nemenda.

Lausar íbúðir í Hnitbjörgum

Lausar eru til umsóknar 2 íbúðir í Hnitbjörgum á Blönduósi. Hnitbjörg er kjarni tíu íbúða fyrir aldraða í sjálfstæðri búsetu. Um er að ræða tveggja herbergja íbúðir. Önnur þeirra er á 1. hæð, útgengt er í sólskála og út á verönd. Hin er á 2. hæð, útgengt er í sólskála.

Samningur um sálfræðiþjónustu í Austur Húnavatnssýslu

Félags- og skólaþjónusta Austur Húnavatnssýslu og Sensus slf. undirrituðu í gær 2 ára samning. Samningurinn lýtur að sálfræðiþjónustu í leik- og grunnskólum í Austur Húnavatnssýslu ásamt auknu samstarfi við barnavernd á svæðinu.

Óskum eftir félagsráðgjafa í barnavernd

Félags- og skólaþjónusta A-Hún auglýsir starf félagsráðgjafa í barnavernd laust til umsóknar. Um er að ræða 100% starfshlutfall. Ráðning er tímabundin til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Skrifstofa Félags- og skólaþjónustu A-Hún lokuð í dag vegna ófærðar og veðurs.

Skrifstofa Félags- og skólaþjónustu A-Hún. er lokuð í dag vegna ófærðar og veðurs.

Skrifstofa Félags- og skólaþjónustu A-Hún lokuð yfir hátíðarnar

Skrifstofa Félags- og skólaþjónustu A-Hún verður lokuð yfir hátíðarnar til 4. janúar.

Félags- og skólaþjónusta A-Hún óskar ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.